Reunion 2006
05.07.2006 19:28:43 / utskrift

Útilega?

Hæ hó öll og takk fyrir síðast :)

Jæja nokkrir hafa spurt mig hvort að ekki sé hægt að fara saman í útilegu og þá kannski bara í Vaglaskóg.

Gaman væri að vita hverjir hefðu áhuga á því og hvaða helgi mundi henta best :)

Endilega commentið :)

Kv.Írena

» 13 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 22:24:11 / utskrift

jæja...

Jæja...þá er reunionið búið og mikið gaman var að hitta ykkur öll sömul... :) kvöldið var bara algjör snilld.... langar bara að þakka fyrir þáttökuna...

En svo er annað... er fólk ekki til í að deila myndum frá kvöldinu?? að finna sér eitthvað pláss og henda tenglunum hérna inn svo að allir geti skoðað???

Endilega tékkið á því og látið í ykkur heyra....

Kv. Kristjana


» 11 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 10:11:03 / utskrift

Föstudagurinn 2.júní!!!

Já það er bara komið að þessu :)

Ætlum að hittast í kvöld klukkan 19.45 í andyri Glerárkirkju og vil ég biðja alla um að mæta stundvíslega, ekki undir áhrifum áfengis og snyrtilega klædd. Við verðum nú að vera okkur til sóma, enda glæsilegt fólk hér á ferð :)

Gunnar Örn var svo góður á hann ætlar að flytja ræðuna sem ég, Kristjana og Gunnar erum búin að semja og er hún mjög stutt en hnitmiðuð :) Takk fyrir þetta Gunnar :)

Það eru samt nemendur sem ekkert hafa látið vita af sér og ef að þið vitið eitthvað um þau viljiði þá láta mig vita.
Hér kemur listinn af þeirra nöfnum;

Árni
Elín Björg
Ellen María
Heimir Örn
Kolbrún Ýrr
Ólöf Kristín
Tinna Dögg

Og þeir sem hafa "skráð sig" en ekki greitt eru;
Ingi Rafn

Ef að þið vitið hvort að þau ætli að mæta eða ekki, að þá hafa þau séns til hádegis að leggja inn á reikning 0565-14-606920, kt. 240985-2689. Ég kem samt til með að eyða þeim reikningi á milli 12 og 13 :)

Svo er það bara að mæta með góða skapið og áfengið á Vélsmiðjuna eftir Kirkjuna og hafa mega gaman :)

Kv.Írena


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 21:29:12 / utskrift

Miðvikudagur...

 .... og alltaf styttist í reunionið ;)

Við höfum sett upp stutta "dagskrá" fyrir kvöldið, en þar sem þetta er í seinni kantinum á föstudagskvöldi að þá var nú minna sem hægt var að gera.

En svona verður þetta í grófum dráttum.....
Föstudaginn 2.júní mætum við stundvíslega sæt og fín í Glerárkirkju klukkan 19.45 og verðum við útskriftina hjá 10.bekk. Þar mun okkar ræðumaður/kona flytja ræðuna og mun þessu athöfn taka alls um klukkutíma.
Það er mjög mikilvægt að við verðum okkur til sóma og því er stranglega bannað að mæta undir áhrifum áfengis!!

Eftir kirkjuna verður haldið á efri hæð Vélsmiðjunnar en þar munum við rifja upp gamla tíma og fræðast um hvert annað, mikið hefur nú breyst hjá mörgum okkar síðustu 5 árin.
Á Vélsmiðjunni fáum við pizzur og eitthvað meðlæti og reiknum við með að allir "sturti" í sig áfenginu með því, alla drykki komiði með sjálf, hvort sem það er áfengi eða annað, en við erum búin að fá leyfi til að hafa okkar drykki fram að miðnætti en þá tekur við salan á barnum :)

Gott væri að þið munduð skrá ykkur hérna undir færsluna sem fyrst og fyrir miðvikudaginn 31.maí leggja inn á eftirfarandi reikning 1585 krónur og með því staðfestiði komu ykkar.
Reikningsnúmerið er:
0565-14-606920, kt. 240985-2689.
(Ef þið leggið inn af öðrum en ykkar eigin reikningi, vinsamlegast setjið þá nafn eða kennitölu sem athugasemd)

Tímasetning: 2.júní 2006, klukkan 19:45
Staðsetning: Glerárkirkja

....og munið að skrá ykkur og borga til staðfestingar :)

Kv.Írena og Kristjana

Ps.....hver ætlar að vera ræðumaður?? Við erum að tala um að viðkomandi þarf að segja nokkur orð, ekkert að tala í margar mínútur :)


» 63 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 16:57:30 / utskrift

Allt að verða klárt....

Jæja þá er allt að verða klárt!

Á morgun set ég inn allt um það hvernig þessu verður öllu saman háttað, en það sem þið þurfið að gera er að taka frá 2 júní frá 19:45 og fram á nótt ;)

Ég set einnig inn reikningsnúmer, en inn á þann reikning leggjið þið 2001 krónu ef að þið ætlið að vera með ;)
Þessar krónur verða nýttar í að leigja sal og kaupa pizzur handa okkur :)
Allur afgangs peningur (ef svo verður) fer í að kaupa áfengi, svo að hver króna verður nýtt :)

Þið megið bara vera dugleg að fylgjast með hérna á síðunni og láta aðra "bekkjarfélaga" vita af henni, og okkar vantar ennþá ræðumann en Hrannar var ekki alveg tilbúinn í þann pakka ;) hehe

Kv.Írena


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 15:00:05 / utskrift

Það styttist í Reunion!! ;)

Jæja kæru bekkjarfélagar !! ;)

Núna er aldeilis stutt í kvöldið góða en það er eins og áður hefur komið fram 2.júní ;)

Það sem okkur vantar ennþá er ræðumaður og má sá alveg fara að gefa sig fram ;) hehe

Okkur vantar líka sal sem við gætum fengið að vera í fram að ca miðnætti svo að við þurfum ekki að dúsa inn á einhverjum skemmtistað.  Ég var með einn góðann í hug en þeir geta ekki svarað mér fyrr en eftir helgi þar sem það eru kostningar í gangi og margir salir uppteknir sökum þess.
En ef að þið munið eftir einhverjum sal sem væri hentugur, helst sem næst bænum að þá endilega látið okkur vita :)

Við förum svo að setja inn verð og sennilega förum við fram á að allir greiði fyrirfram, því þá sjáum við líka 100% hverjir ætla að mæta :)

Ef að einhverjir vilja hafa "uppistand" á kvöldinu sjálfu að endilega látið vita :)

Kv.Írena


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 13:14:55 / utskrift

Jæja...

...þá eru allir búnir að láta vita af sér :)

Dagskráin kemur fljótlega á hreint og munum við þá skella henni hérna inn og þá verða allir að láta vita hvort að þeir mæti eða ekki :)

Svo var líka annað.....ef að þið fenguð ekki sms frá okkur þegar við byrjuðum með síðuna að þá vinsamlegast sendið okkur mail eða sms svo að við séum með númerin ykkar :)

Kv.Írena

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 19:49:08 / utskrift

Smá skrif....

Góðan daginn

Veit einhver um þessa skvísu!! :) 
Endilega ef að þið vitið hvar þau eru að finna, látið þau þá vita af þessari síðu :)


Dýrleif Halla

....Svo vil ég minna ykkur á að okkur vantar ennþá ræðumann, ef einhver bíður sig fram.....endilega látið vita :) Við erum samt ekki að ætlast til að sá sem flytji ræðuna semji hana einn heldur munu einhverjir hjálpsamir hjálpa til.

Munið svo eftir að taka þátt í skoðana könnuninni hér til hliðar :)

En þar til næst....hafið það gott
....og endilega bara hafið samband ef að einhverjar spurningar vakna :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 16:13:52 / utskrift

Góðan daginn!!

Jæja þá er það spurning hvað þið eruð tilbúin að borga fyrir sal og kannski einhvern mat um kvöldið?

Við vorum búnar að sjá fyrir okkur að þegar við kæmum í salinn, sem verður fyrir valinu, að þá yrðu pantaðar pizzur eða eitthvað álíka því við verðum nú að borða ef að við eigum að halda út kvöldið ;)
Svo mundu þá bara allir koma með drykki (áfengi eða gos) svo að allir gætu nú drukkið eitthvað við hæfi :)

Hafiði einhverjar aðrar hugmyndir um hvernig þetta gæti verið? Einhver önnur uppástunga með mat? Hvað viljiði gera um kvöldið og svo framvegis :)

Svarið könnuninni hér til hægri svo að við sjáum hvað þið eruð ca. tilbúin til að borga :)


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 14:28:24 / utskrift

Hvað á að gera?

Jæja... þá er nú farið að líða á veturinn og þurfum við því að fara að ákveða hvað við viljum gera þegar að þessu kemur??? er einhver með góðar uppástungur til að koma með eitthvað sem við getum gert skemmtilegt saman??

Endilega komið með allt sem ykkur dettur í hug og langar að gera og hendið því hérna inn... um að gera að hafa það sem skemmtilegast og ódýrast svo að sem flestir mæti ;) og að koma með eitthvað sem fyrst svo að við getum talað við þá einstaklinga sem þarf að tala við....(fer eftir því hvað við gerum)

En nóg í bili...komið með uppástungur..


» 28 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 10:54:59 / utskrift

Nemenda listi....

Jæja... hérna er listinn og er kross fyrir framan þá sem búnir eru að kvitta og vantar ennþá nokkra sem við viljum endilega hafa með :)
Þið sem vitið símanúmer eða mail eða eitthvað hjá þeim sem vantar endilega að láta þá vita svo að við náum sambandi við alla :)
Ég/við munum uppfæra þennan lista jafnóðum eftir því sem fólk kvittar...og já eins og Máni spurði afhverju enginn notar gestabókina...þá kom svar þar frá Eddu að það eyðist jafnóðum út úr gestabókinni...held það séu bara 15 færslur sem sjást þar í einu en ekki í skoðunum... ;)

Kv. Kristjana

 

Aðalbjörn Jóhann Þórhallsson   

X Arnar Þór Stefánsson

X Árni Gunnarsson

   Ásbjörn Hall Sigurpálsson

Birgir Björnsson                         

Birgir Örn Hansen                      

Birkir Halldórsson                                  

X Brynja Björg Vilhjálmsdóttir        

X Brynjar Valþórsson                     

X Dagný Björg Gunnarsdóttir           

   Dýrleif Halla Jónsdóttir               

X Edda Bára Höskuldsdóttir          

X Eggert Ármann Ármannsson     

   Elín Björg Guðmundsdóttir        

X Ellen María Guðmundsdóttir      

X Elvar Örn Svansson                  

X Fanney Sigurðardóttir               

X Georg Óskar Giannakoudakis Manúelsson

X Guðbjörg Ellý Gústafsdóttir

Guðrún Helga Heiðarsdóttir

X Gunnar Máni Hermannsson

X Gunnar Örn Gunnarsson

X Halla Björk Jósefsdóttir

Heiðbjört Unnur Gylfadóttir

X Heimir Örn Gunnlaugsson

X Helga Sif Eiðsdóttir

Helga Valgerður Ísaksdóttir

   Hildur Arna Magnúsdóttir

X Hjörleifur Helgi Jónsson

Hrannar Hólm Sigrúnarson

Hrannar Ólafsson

X Hrönn Helgadóttir

Inga Bryndís Bjarnadóttir

Ingi Rafn Svansson

X Izaar Arnar Þorsteinsson

X Írena Elínbjört Sædísardóttir

X Jóhann Helgi Heiðdal

X Júlía Guðrún Gunnarsdóttir

X Karen Sveinsdóttir

X Katrín Árnadóttir

X Katrín Erna Gunnarsdóttir

X Kolbrún Ýrr Bjarnadóttir

X Kristín Anna Kristjánsdóttir

X Kristín Helga Hauksdóttir

X Kristjana Vilborg Árnadóttir

X Lára Jóna Björgvinsdóttir

X Matthías Gísli Egilsson

X Máni Jökulsson

X Óðinn Guðmundsson

X Ólöf Kristín Jóhannesdóttir

X Rakel Bjarnveig Ármannsdóttir

Rósa Dröfn Guðgeirsdóttir

X Sigríður Jóhannsdóttir

X Sonja Sigurgeirsdóttir

X Sunna Kristín Sigurðardóttir

Svavar Árni Halldórsson

X Tinna Dögg Magnúsdóttir

X Ýr Árnadóttir

X Þorgerður Kr. Jónsdóttir


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 14:32:19 / utskrift

Tilkynning um stað og stund....

Jæja...þá er komið að því.... Útskrift 10. bekkjar síðuskóla 2006... þar af leiðandi 5 ára REUNION hjá okkur winking 

Við vorum að vonast til þess að allir gæti séð sér fært að mæta norður yfir heiðar þann 2. júní nk. til að vera viðstaddir útskriftina hjá krökkunum og gera eitthvað skemmtilegt saman....s.s ´85 árgangurinn.
Við fengum bréf frá Óla skóla þar sem hann lýsti því fyrir okkur hvert okkar hlutverk á útskrifinni væri.... Það þarf að vera góð ræða...og því þurfum við GÓÐANN penna og GÓÐANN ræðumann til að annast ræðuna sem þarf að fara með. Ræðu sem nær til allra aldurshópa og þá sérstaklega útskriftarnema og fjölskyldna þeirra.
"Ykkar hlutverk er að halda smá ræðu þar sem dvölinni í skólanum er gerð skil. Þetta er lofræða um skólann og skólastjórann sérstaklega big grin og minningar um skemmtileg atvik sem þið upplifðuð. " (úr bréfinu frá Óla)

"Útskriftin verður 2. júní klukkan 20: 00. Annað sem ég vil nefna og það er að fimm ára útskriftarnemar eru oftast með teiti eftir að útskriftinni lýkur um kvöldið en það er aldeilis óviðeigandi að þeir séu undir áhrifum áfengis á útskriftinni. Það eru ekki góð skilaboð og fyrirmynd fyrir útskriftarbörnin. Ég nefni þetta af gefnu tilefni. Eitt að lokum. Allir eru snyrtilega klæddir og við viljum viðhalda þeirri hefð."

Svo jæja..eru ekki einhverjir sem bjóða sig fram að skrifa skemmtilega ræðu og að flytja hana??? Endilega hafið samband.

 

En höfum þetta gott í bili þangað til við vitum eitthvað meira.

P.S. þar sem við erum ekki með símanúmer hjá öllum til að láta vita af síðunni...endilega látið þetta berast...og að þeir sem að koma hingað inn kvitti fyrir komu sína svo við getum fylgst með hverja vantar.

P.S 2.....endilega allir að staðfesta símanúmer sín líka með því að senda á okkur mail eða sms með númerinu og nafni :) svo við getum látið vita þegar eitthvað nýtt kemur inn... ;)


» 91 hafa sagt sína skoðun